Lík í frystikistunni Guðjón Helgason skrifar 5. maí 2008 18:30
Þýska lögreglan handtók í morgun konu eftir að lík þriggja kornabarna fundust í frystikistu á heimili hennar. Konan og maður hennar voru á ferðalagi í Svartaskógi um helgina. Börn þeirra sem eru á unglingsaldri voru heima. Að sögn lögreglu fundu þau eitt líkið þegar þau voru að leita að mat í frystikistunni í kjallara fjölskylduheimilisins í Wenden austur af Köln. Konan gaf sig síðan fram við lögreglu sem fann tvö lík til viðbótar í kistunni. Börnin voru ekki andvana fædd. Lögregla hefur ekkert gefið upp um dánarorsök og ekki er vitað hvað börnin voru gömul þegar þau dóu. Konan hefur viðurkennt að hafa komið líkunum fyrir í frystikistunni. Börnin voru vafin í plast og dagblöð. Eitt blaðanna var frá 1988 sem bendir til þess að líkin hafi verið geymd í frystikistunni í um tvo áratugi. Nokkur mál svipuð þessu hafa komið upp í Þýskalandi síðustu misseri. Fyrir skömmu var kona í austurhluta Þýskalands dæmd í 15 ára fangelsi fyrir að hafa myrt 8 börn sín og grafið í garðinum sínum. Heilsugæslustöðvar á nokkrum stöðum í landinu hafa sumar komið fyrir sérhönnuðum lúgum þar sem örvilnaðar mæður geta skilið börn sín eftir. Þannig er talið að bjarga megi lífi einhverra barna.
Erlent Fréttir Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Vučić játar ósigur Erlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira