Fótbolti

Vålerenga í úrslit norska bikarsins

Árni Gautur komst ekki í úrslitaleikinn
Árni Gautur komst ekki í úrslitaleikinn

Það verða Vålerenga og Stabæk sem leika til úrslita um norska bikarinn í knattspyrnu í næsta mánuði. Vålerenga vann í kvöld 2-1 sigur á Odd Grenland í undanúrslitum.

Árni Gautur Arason stóð í marki Odd Grenland í kvöld og varð að sætta sig við tap fyrir fyrrum félögum sínum.

Það er því ljóst að þeir Veigar Páll Gunnarsson og Pálmi Rafn Pálmason verða einu fulltrúar okkar Íslendinga í úrslitaleiknum þann 9. október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×