Fótbolti

Gautaborg sænskur bikarmeistari

Ragnar og Hjálmar voru ískaldir í vítakeppninni
Ragnar og Hjálmar voru ískaldir í vítakeppninni Mynd/Tommy Holl

Gautaborg varð í dag sænskur bikarmeistari í knattspyrnu eftir dramatískan 5-4 sigur á Kalmar eftir framlengingu og vítakeppni.

Þeir Hjálmar Jónsson og Ragnar Sigurðsson voru báðir á sínum stað í liði Gautaborgar og þeir tóku þriðju og fjórðu spyrnu liðsins í vítakeppninni og skoruðu báðir af öryggi. Sigurinn tryggir Gautaborg sæti í Uefa-keppninni á næstu leiktíð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×