Körfubolti

Óvænt úrslit í NBA í nótt

LeBron James var sjóðandi heitur í nótt og skoraði 51 stig
LeBron James var sjóðandi heitur í nótt og skoraði 51 stig NordicPhotos/GettyImages

Átta leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt og nokkuð var um óvænt úrslit. LeBron James skoraði 51 stig fyrir Cleveland þegar liðið sigraði Memphis 132-124 í framlengdum leik.

James skoraði 25 af þessum stigum sínum í fjórða leikhlutanum og framlengingu og var þetta í fjórða skiptið á ferlinum sem hann skorar 50 stig eða meira.

"Það er gaman að ná svona áfanga þegar við vinnum. Hvert einasta stig sem ég skoraði í kvöld skipti máli. Við höfum tapað þegar ég skora 50 stig og þá fannst mér mun minna til þess komið," sagði James eftir leikinn. Hann hirti auk þessa 8 fráköst og gaf 9 stoðsendingar.

Rudy Gay var atkvæðamestur hjá Memphis með 30 stig og 9 fráköst, Pau Gasol skoraði 19 stig og hirti 12 fráköst og Juan Carlos Navarro skoraði 26 stig af bekknum.

Atlanta vann góðan heimasigur á Denver 104-93 þar sem Joe Johnson skoraði 22 stig fyrir heimamenn en Carmelo Anthony setti 36 stig fyrir gestina.

Orlando vann auðveldan sigur á Chicago 102-88. Rashard Lewis skoraði 26 stig fyrir Orlando en Joe Smith var stigahæstur hjá gestunum með 13 stig.

Detroit skellti Toronto heima 103-89 þar sem Rip Hamilton skoraði 39 stig fyrir Detroit og hitti mjög vel úr skotum sínum (16-22). Chris Bosh var atkvæðamestur hjá gestunum með 16 stig og 11 fráköst.

Washington tapaði 105-93 í New York eftir að hafa lagt Boston að velli tvisvar á einni viku. Jamaal Crawford skoraði 29 stig fyrir New York en Caron Butler setti 24 stig fyrir Washington. Þetta var annar sigur New York í röð og slíkt hefur verið sjaldgæft hjá liðinu í vetur enda aðeins 11 sigrar komnir í hús.

Golden State lagði Minnesota á útivelli 105-98 þar sem Baron Davis skoraði 22 stig og gaf 9 stoðsendingar fyrir Golden State en Antoine Walker skoraði 26 stig fyrir heimamenn sem hafa aðeins unnið 5 leiki í allan vetur.



Óvænt tap hjá Phoenix
Sam Cassell fór fyrir Clippers liðinu í sigrinum á PhoenixNordicPhotos/GettyImages

Philadelphia vann óvæntan útisigur á Houston 105-98 og stöðvaði þar með sjö leikja taphrinu. Liðið var á tíma 16 stigum undir í síðari hálfleik en tók mikla rispu í lokin og tryggði sér fyrsta sigurinn á útivelli í sex tilraunum. Andre Miller skoraði 26 stig fyrir Philadelphia en Yao Ming var með 25 stig og 8 fráköst hjá heimamönnum.

Þá tapaði Phoenix óvænt fyrir LA Clippers á útivelli 97-90. Clippers liðið hafði tapað fjórum leikjum í röð en það var gamla brýnið Sam Cassell sem tryggði liðinu sigur með 32 stigum og hitti hann úr 15 af 21 skoti sínu í leiknum, gaf 7 stoðsendingar og hirti 6 fráköst. Corey Maggette skoraði 21 stig og Chris Kaman hirti 18 fráköst.

Amare Stoudemire skoraði 29 stig og hirti 8 fráköst fyrir Phoenix, Raja Bell skoraði 15 stig, Steve Nash var með 14 stig og 13 stoðsendingar og Shawn Marion skoraði einnig 14 stig og hirti 17 fráköst.

Staðan í NBA:

Austurdeild:

1 BOS 30-6

2 DET 29-10

3 ORL 24-16

4 WAS 20-17

5 CLE 20-18

6 TOR 20-18

7 ATL 17-17

8 NJN 18-19

9 IND 17-22

10 MIL 15-23

11 CHI 14-22

12 PHI 15-24

13 CHA 14-23

14 NYK 11-26

15 MIA 8-28

Vesturdeild:

1 LAL 26-11

2 SAS 25-11

3 DAL 26-12

4 PHO 26-12

5 NOR 25-12

6 POR 23-14

7 DEN 22-15

8 GSW 23-16

9 UTH 22-17

10 HOU 20-19

11 SAC 15-21

12 LAC 11-23

13 MEM 10-28

14 SEA 9-28

15 MIN 5-32
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×