Útflutningur á óunnum botnfiski eykst 2. febrúar 2008 12:39 Ýsa á ís. MYND/GVA
Útflutningur á óunnum botnfiski hefur aukist fyrstu fjóra mánuði fiskveiðiársins miðað við sama tíma í fyrra. Mest er aukningin í útflutningi á óunninni ýsu eða 32 prósent. Starfsgreinasambandið vill að ríkisstjórnin geri það fýsilegra fyrir fyrirtæki að vinna aflann hér á landi. Þann fyrsta september síðast liðinn féll úr gildi 10 prósenta álag sem greitt var vegna útflutnings á gámafiski frá Íslandsmiðum. Álagið gerði það að verkum að aukalega dróst frá kvóta útgerða sem fluttu fiskinn óunninn úr landi. Fram kom á fréttavefnum Fishupdate.com að hagsmunaaðilar í Bretlandi hafi þrýst á um þessa breytingu ásamt íslensku fiskútflytjendum og kvótahöfum. Fulltrúar Starfsgreinasambandsins funduðu í gær með fulltrúm ríkisstjórnarinnar vegna uppsagna fiskvinnslufólks að undanförnu en 456 manns hafa misst vinnuna síðan kvótaskerðining var ákveðin og um 120 til viðbótar búa við lokanir. Á sama tíma hefur útflutningur á óunnum fiski aukist. Þegar litið er tölur Fiskistofu kemur í ljós að um 32 prósenta aukning hefur orðið á fyrstu fjórum mánuðum þessa fiskveiðiárs á útflutningi á óunninni ýsu og um 13 prósent aukning á Þorski. Meðal þess sem Starfsgreinasambandið vill að ríkisstjórnin geri er gera það fýsilegra, jafnvel að kvöð, að vinna sem mestan eða allan afla innanlands. Nefnd á vegum sjávarútvegsráðuneytisins átti að skila tillögum þar að lútandi síðasta sumar sem ekkert hefur bólað á.
Viðskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira