Handbolti

Fram úr leik þrátt fyrir sigur

Elvar Geir Magnússon skrifar
Andri Berg Haraldsson og félagar hans í Fram eru úr leik í Áskorendakeppni Evrópu í handbolta.
Andri Berg Haraldsson og félagar hans í Fram eru úr leik í Áskorendakeppni Evrópu í handbolta. Mynd/Arnþór

Fram er úr leik í Áskorendakeppni Evrópu í handbolta. Liðið vann eins marks sigur á CSU Poli í Rúmeníu í morgun en heimamenn unnu fyrri leikinn með tveimur mörkum í gær og komast því áfram.

Leikurinn í morgun var seinni leikur þessara liða í sextán liða úrslitum. Hann endaði með 25-24 sigri Fram sem dugði þó ekki til. Fram fékk víti undir lokin sem liðið nýtti ekki en það hefði tryggt þeim framlengingu.

Markaskorarar Fram voru (skv. handbolti.is):

Jóhann Gunnar Einarsson 10, Rúnar Kárason 6, Stefán Baldvin Stefánsson 3, Hjörtur Hinriksson 2, Brjánn Bjarnason 2, Einar Ingi Hrafnsson 1 og Guðjón Drengsson 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×