Körfubolti

Boston fær heimavallarrétt alla úrslitakeppnina

Elvar Geir Magnússon skrifar
Úr leiknum í nótt.
Úr leiknum í nótt.

Eftir sigur Boston Celtics á Charlotte í nótt er ljóst að liðið hefur tryggt sér besta árangur allra liða í NBA-deildinni þetta tímabilið. Það verður því með heimavallarrétt alla úrslitakeppnina.

Kevin Garnett, Ray Allen og Paul Pierce voru fjarri góðu gamni í nótt, sá síðastnefndi var að eignast barn. Það kom þó ekki í veg fyrir 61. sigur Boston á leiktíðinni.

Boston vann bara 24 leiki á síðasta tímabili og er nú búið að setja met yfir mesta viðsnúning milli tímabila. Fyrra metið átti San Antonio tímabilið 1997-98.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×