Uppgjafahermenn reiðir út í Time Óli Tynes skrifar 18. apríl 2008 14:32
Bandarískir uppgjafahermenn sem börðust á japönsku eynni Iwo Jima í síðari heimsstyrjöldinni eru öskureiðir út í vikuritið Time. Nýjasta hefti blaðsins er tileinkað loftslagsbreytingum. Og á forsíðunni er eftirlíking af einni frægustu ljósmynd styrjaldarinnar. Það er þegar bandarískir hermenn reistu bandaríska fánann á Iwo Jima. Á þessari forsíðu er búið að skipta fánanum út fyrir tré. Orrustan tók 35 daga og yfir 26 þúsund bandarískir hermenn féllu eða særðust. Af 21 þúsund japönskum hermönnum sem voru á eynni féllu 20.703. Aðeins 216 voru teknir til fanga. Donald Mates barðist á Iwo Jima og honum finnst það stórkostlega móðgandi að leggja orrustuna að jöfnu við loftslagsbreytingar, sem hann segir að alls ekki allir séu sammála um að sé mikil ógn. Mates særðist alvarlega í orrustunni og það þurfti margar aðgerðir næstu þrjátíu árin til að tína úr honum öll sprengjubrotin. John Keith Wells, var lautinant og foringi herflokksins sem reisti fánann á Iwo Jima. Hann er heldur ekki hrifinn af forsíðu Time. Hann sagði í blaðaviðtali að loftslagsbreytingarnar væru brandari. Hann sagði jafnframt að þeir félagar væru alveg til í að stinga tré upp í afturendann á einhverjum, ef það væri talið koma að gagni.
Erlent Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Vučić játar ósigur Erlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira