Bröndby lagði FC Kaupmannahöfn - Sölvi skoraði Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. ágúst 2008 21:11 Stefán Gíslason, leikmaður Bröndby.
Stefán Gíslason og félagar í Bröndby unnu góðan 1-0 sigur á FC Kaupmannahöfn í dag. Stefán lék allan leikinn í liði Bröndby en það var Jan Kristiansen sem skoraði sigurmark leiksins. Sölvi Ottesen skoraði eina mark SönderjyskE í kvöld sem tapaði 1-2 fyrir Álaborg. Sölvi lék allan leikinn í kvöld. Þá tapaði Esbjerg fyrir Horsens, 1-0. Gunnar Heiðar Þorvaldsson var í byrjunarliði Esbjerg en var tekinn af velli á 60. mínútu. OB er á toppi deildarinnar með fimmtán stig eftir sex umferðir en Bröndby komst upp fyrir FCK í kvöld með sigrinum. Liðið er í öðru sæti með tólf stig og FCK í því þriðja með ellefu. SönderjyskE er í næstneðsta sæti með fimm stig og Esbjerg á botninum með þrjú. Gengi Noregsmeistara Brann batnaði ekki í kvöld er liðið tapaði fyrir Bodö/Glimt á útivelli, 3-1. Birkir Bjarnason var í byrjunarliði Bodö/Glimt og var skipt af velli undir lok leiksins. Ólafur Örn Bjarnason og Kristján Örn Sigurðsson léku í vörn Brann í kvöld en þeir Ármann Smári Björnsson og Birkir Már Sævarsson voru á bekknum. Gylfi Einarsson var ekki í hópnum. Ólafur Örn var tekinn af velli undir lok leiksins en Ármann Smári kom inn á sem varamaður á 83. mínútu. Ármann og Kristján fengu báðir að líta gula spjaldið í leiknum. Tromsö komst upp í annað sæti deildarinnar með því að gera 3-3 jafntefli við Lyn. Tromsö komst reyndar í 3-1 forystu en Lyn jafnaði á lokamínútum leiksins. Indriði Sigurðsson var í byrjunarliði Lyn og Theodór Elmar Bjarnason á bekknum. Hann kom inn á sem varamaður á 56. mínútu en Indriði lék allan leikinn. Þá gerðu Viking og Molde einnig 3-3 jafntefli en Rosenborg vann 2-1 sigur á Vålerenga. HamKam vann einnig sigur á Strömsgodset, 2-1.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki Sjá meira