Viðskipti erlent

Google blandar sér í símaslaginn

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
MYND/Getty Images

Nýr sími sem notar alfarið hugbúnað frá leitarvélarisanum Google er kominn á markað í Bretlandi og er settur til höfuðs flaggskipunum iPhone og Blackberry.

Þeir hjá Google eru ekki þekktir fyrir að tefla fram flóknum vörumerkjum enda ber nýi síminn þess skýr merki. Hann heitir einfaldlega G1 og var afhjúpaður í New York fyrir mánuði. Nú er sala á honum hafin í Bretlandi þar sem fyrirtækið T-Mobile annast dreifinguna.

Það er Android-hugbúnaðurinn frá Google sem knýr nýja símann enda er hann kynntur sem sími og lófatölva í einu og sama tækinu. Þar liggur einmitt kjarninn í samkeppninni við Apple sem hefur sett sér það markmið að þróa tæki þar sem skilin milli síma og netvafra hverfa nánast alveg.

Ýmis þekkt Google-þjónusta verður aðgengileg gegnum G1-símann og má þar nefna leiðarlýsingarþjónustuna Google Maps og Google Talk sem er skyndiskilaboðaþjónusta ekki ósvipuð MSN frá Microsoft. Öllum herlegheitunum fylgir svo fullkomin stafræn myndavél því ekki telst það merkilegur sími núorðið sem tekur ekki myndir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×