Formúla 1

Hamilton: Myndi elska að vinna í Singapúr

Lewis Hamilton verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í dag og út um allan heim.
Lewis Hamilton verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í dag og út um allan heim. mynd: Getty Images

Formúlu 1 mótið í Singapúr fer fram í dag og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 11.30 í opinni dagskrá, en þátturinn Endamarkið er sýndur kl. 14.15 og aftur í kvöld kl. 22.00.

Lewis Hamilton er fremstur á ráslínu á McLaren á götum Singapúr. Við hlið hans er Sebastian Vettel á Red Bull, sem er einn fjögurra ökumanna sem á möguleika á meistaratitilinum ásamt Mark Webber, sem er fjórði og Rubens Barrichello í tíunda sæti og Jenson Button í tólfta sæti. Þeir tveir síðarnefndu er á Brawn bílum og gekk illa í tímatökunni í gær.

Button er með 14 stiga forskot á Barrichello og 26 stig á Vettel, en Vettel er í kjörstöðu að sækja dýrmæt stig á Button í mótinu í dag. Hann var á góðri leið með að ná besta tíma í gær þegar Barrichello klessti bíl sinn og stöðva varð tímatökuna og staðan sem var kominn upp gilti til uppröðunnar á ráslínu.

Fjörtíu stig eru ennþá í stigapottinum og því ramman reip að draga fyrir Vettel, en hann er staðráðinn í að vinna síðustu fjögur mót ársins og byrja í Singapúr. En Hamilton stefnir líka á sigur.

"Ég vildi svo sannarlega að ég væri að keppa um meistaratitilinn, en árið hefur verið erfitt og ég verð að láta mér nægja að keppa um sigur í einstökum mótum. Það kom mér á óvart að ná besta stað á ráslínu og ég myndi elska að vinna á götum Singapúr, en mótið er langt og strangt", sagði Hamilton.

Sjá rásröð og brautarlýsingu








Fleiri fréttir

Sjá meira


×