Formúla 1

Ferrari í fýlu við Frank Williams

Ferrari liðið er ekki sátt við Williams þessa dagana,
Ferrari liðið er ekki sátt við Williams þessa dagana,

Forráðamenn Ferrari eru afar ósáttir að Frank Williams og lið hans hafi sett sig á móti því að Michael Schumacher fái einn æfingadag á 2009 bíl. Williams vill að farið sé að reglum um æfingabann milli móta og ekki skapað fordæmi á breytingum.

"Liðið sem er á móti ráðhagnum hefur ekkert unnið síðustu ár og sýna neikvætt íþróttamannslegt fordæmi enn eina ferðina. Á dögunum samþykkti Ferrari að nýliðinn Jamie Alguersuari hjá Torro Rosso fengi samskonar prufudag, en menn þurftu að setja sig upp á móti því líka", segir á vefsíðu Ferrari í dag.

Schumacher keyrir í stað Felipe Massa og liðið vildi leyfa honum spreyta sig á bíl, áður en út í alvöruna er komið. Williams liðið reið á vaðið og sagði það ótækt að hann fengi undanþágu og Torro Rosso og Red Bull fylgdu í kjölfarið.

Schumacher hefur ekið 2007 bíl á æfingum og hvað líkamsrækt varðar hefur hann lést um 3 kg frá því tilkynnt var um þátttöku hans.

Sjá nánar um málið






Fleiri fréttir

Sjá meira


×