Fótbolti

Kaupmannahöfn á toppinn

Elvar Geir Magnússon skrifar
Stefán er fyrirliði Bröndby.
Stefán er fyrirliði Bröndby.

Stefán Gíslason og félagar í Bröndby hleyptu FC Kaupmannahöfn í toppsæti dönsku deildarinnar í kvöld. Bröndby tapaði 0-1 í uppgjöri toppliðanna tveggja sem höfðu sætaskipti.

Stefán lék allan leikinn fyrir Bröndby en það var Almeida sem skoraði eina markið á 78. mínútu. Kaupmannahöfn er í efsta sæti með 40 stig, stigi á undan Bröndby. OB er í þriðja sæti með 38 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×