1 stk sérvalin prime ribs vöðvi (2 til 3kg)
½ dl góð ólífuolía
1 góður dúskur blóðberg ferskt
1 góður dúskur rósmarin ferskt
nýmalaður svartur pipar
flögusalt salt
2 stk laukur
4 gulrætur
1 hvítlaukur
Aðferð:
Hreinsið vöðvann og nuddið hann vel með salti og nýmöluðum pipar bindið upp vöðvann með góðu garni, brúnið vöðvann á pönnu látið standa í smá stund og baðið í olíunni skerið grænmetið gróft og raðið í góða djúpa ofnskúffu setjið vöðvann ofan á grænmetið og raðið kryddjurtunum yfir.
Setjið í 90°c heitan ofn í 3-4 klukkutíma snúið vöðvanum einu sinni á klukkutíma takið vöðvann út látið standa í 20 mín áður en hann er sneiddur berið fram með sigtuðu soðinu úr skúffuni, góðum kartöflum, vænum sítrónubát, fersku salati og góðri ólífuolíu.
Hátíðarkartöflur
4 bökunar kartöflur ísl
10 möndlukartöflur ísl
50 gr smjör
½ dl rjómi hitaður upp að suðu
Salt
Múskat
Andarfita til steikingar
2 dl grænmetissoð
Skrælið bökunar kartöflurnar og skerið til t.d. í ferning eða sívalning kúlið gat í miðjuna og brúnið í andarfitunni setjið í ofnskúffu og hellið soðinu yfir hyljið með álpappír og bakið í 165°c heitum ofni í 25 til 30 mín. Sjóðið möndlukartöflurnar í söltu vatni við væga suðu ath. þær eiga til að springa
Takið af hitanum og afhýðið pressið í gegnum kartöflusigti og hrærið upp í hrærivél með volgum rjómanum, smjöri, salti og örl. múskati.
Hægeldað nauta prime ribs að hætti Friðriks V
