Körfubolti

Njarðvík með öruggan sigur gegn Keflavík

Ómar Þorgeirsson skrifar
Jóhann Árni Ólafsson í baráttunni í leiknum í kvöld.
Jóhann Árni Ólafsson í baráttunni í leiknum í kvöld. Mynd/Daníel

Njarðvík vann 76-63 sigur gegn Keflavík í sannkölluðum toppslag í Iceland Express-deild karla í körfubolta í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld.

Njarðvíkingar leiddu 18-11 eftir fyrsta leikhluta en staðan var 34-22 í hálfleik.

Njarðvíkingar gerðu svo nánast út um leikinn í þriðja leikhlutanum og fóru inn í lokaleikhlutann með tuttugu og þriggja stiga forskot, 63-40.

Sigurinn var aldrei í hættu eftir það og aðeins spurning hversu stór hann yrði en lokatölur sem segir 76-63.

Magnús Þór Gunnarsson reyndist sínum gömlu liðsfélögum í Keflavík erfiður og skoraði 21 stig eins og Kristján Rúnar Sigurðsson en Hörður Axel Vilhjálmsson var stigahæstur hjá Keflavík með 21 stig.

Tölfræðin:

Njarðvík-Keflavík 76-63 (34-22)



Stig Njarðvíkur: Magnús Þór Gunnarsson 21, Kristján Rúnar Sigurðsson 21, Jóhann Árni Ólafsson 14, Páll Kristinsson 6, Guðmundur Jónsson 5, Hjörtur Hrafn Einarsson 4, Friðrik Stefánsson 3, Rúnar Erlingsson 2.

Stig Keflavíkur: Hörður Axel Vilhjálmsson 21, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 16, Gunnar Einarsson 9, Rashon Clark 6, Jón Nordal Hafsteinsson 4, Sverrir Þór Sverrisson 4, Elentinus Margeirsson 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×