Jean-Claude Trichet, bankastjóri Seðlabanka Evrópu, sagði á fundi efnahagsnefndar Evrópuþingsins í síðustu viku að bankinn ætli að leggja sitt af mörkum svo aðstæður í hagkerfi evrulandanna versni ekki frekar.
Hann studdi aðgerðir Breta og Frakka til að koma bönkum til bjargar og sagði útlit fyrir að ríkisstjórnir evrulandanna verði ráðandi aflið sem knýja muni hagkerfið áfram á meðan versti samdrátturinn gangi yfir. Bankastjórinn sagði mikla óvissu um þróun efnahagsmála á evrusvæðinu á þessu ári. Reikna megi með batamerkjum á næsta ári. - jab
Bankastjóri bjartsýnn á 2010: Óvissa á evrusvæðinu í ár

Mest lesið

Álögur ríkisins á bankana lendi að miklu leyti á almenningi
Viðskipti innlent

Færri fara til Bandaríkjanna en fækkunin hvað mest frá Íslandi
Viðskipti erlent

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent


Þriggja ára fangelsi og tveggja milljarða sekt
Viðskipti innlent

Kínverjar svara fyrir sig og hækka enn tolla á bandarískar vörur
Viðskipti erlent

Að tilkynna vinnufélaga til lögreglu
Atvinnulíf



Órói á mörkuðum heldur áfram og gullverð aldrei hærra
Viðskipti erlent