Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Samúel Karl Ólason skrifar 3. febrúar 2026 10:32 Elon Musk vonast til þess að koma um milljón gervigreindar gervihnöttum á braut um jörðu á komandi árum. AP/Julia Demaree Nikhinson Elon Musk, auðugasti maður heims, tilkynnti í gær að tvö fyrirtæki hans hefðu verið sameinuð í eitt. Geimferða- og gervihnattafyrirtækið SpaceX hefur nú eignast gervigreindar- og samfélagsmiðlafyrirtækið xAI og varð úr sameiningunni verðmætasta einkafyrirtæki heimsins.
Samkvæmt Wall Street Journal er SpaceX nú metið á um 1,25 billjónir dala, sem samsvarar rúmum 154 billjónum króna (tólf núll). SpaceX hefur hingað til gengið út á að skjóta endurnýtanlegum eldflaugum út í geim og að reka umfangsmikið net Starlink-samskiptagervihnatta á braut um jörðu, sem veita milljónum manna aðgang að netinu. xAI er fyrirtæki sem stofnað var utan um þróun gervigreindarinnar Grok og það fyrirtæki hefur einnig rekið samfélagsmiðilinn X (áður Twitter). SpaceX er þróað fyrirtæki sem hefur aðgang að miklum tekjum, bæði frá bandaríska ríkinu og fjölda viðskiptavina um heiminn allan. Samkvæmt heimildum New York Times vonast Musk til þess að halda hlutafjárútboð í sumar. Fyrirtækið xAI var stofnað á eftir öðrum stórum gervigreindarfyrirtækjum og hefur Musk varið milljörðum dala í að reyna að vinna upp forskot hinna fyrirtækjanna. SpaceX hefur áður fjárfest fyrir tvo milljarða dala í xAI og stóð til að bílaframleiðandinn Tesla (sem er annað fyrirtæki Musks) myndi gera það einnig. SpaceX has acquired xAI, forming one of the most ambitious, vertically integrated innovation engines on (and off) Earth → https://t.co/3ODfcYnqfg pic.twitter.com/el40rCUBGe— SpaceX (@SpaceX) February 2, 2026 Í minnisblaði sem birt var á vef SpaceX í gærkvöldi segist Musk hafa áhuga á því að smíða gagnaver í geimnum. Þannig vilji hann nýta sér nánast stöðuga sólarorku og í senn kælingu í geimnum með tiltölulega litlum viðhaldskostnaði. Musk segist þeirrar skoðunar að innan tveggja til þriggja ára verði ódýrasta leiðin til að reka gervigreind sú að koma tölvubúnaðinum og gagnaverunum sem til þarf fyrir í geimnum. Þar muni SpaceX spila stóra rullu. „Það er alltaf sólríkt í geimnum!“ skrifaði Musk. Þá tilkynntu forsvarsmenn SpaceX í síðustu viku að þeir vildu koma fyrir um milljón smágervihnöttum á braut um jörðu og eiga þeir að mynda hið umrædda gagnaver. Musk segir einnig í minnisblaðinu að á þessu ári standi til að nota Starship-geimfar SpaceX til að senda nýja kynslóð Starlink-gervihnatta á braut um jörðu. Þróun geimfarsins hefur ekki farið eftir áætlunum forsvarsmanna SpaceX á undanförnum árum.
SpaceX X (Twitter) Tesla Elon Musk Gervigreind Geimurinn Mest lesið Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira