Handbolti

N1-deild kvenna: Öryggir sigrar hjá Stjörnunni og FH

Ómar Þorgeirsson skrifar
Þorgerður Anna Atladóttir.
Þorgerður Anna Atladóttir. Mynd/Anton

Tveir leikir fóru fram í N1-deild kvenna í handbolta í kvöld. Íslands -og bikarmeistarar Stjörnunnar áttu ekki í miklum erfiðleikum með Fylki og unnu öruggan 21-33 sigur í Fylkishöllinni.

Stjörnustúlkur skutust þar með upp að hlið Valsstúlkna á toppi deildarinnar en Valur á leik til góða.

Þá vann FH 36-19 sigur gegn Víkingi en Víkingsstúlkur eru búnar að tapa öllum fjórum leikjum sínum til þessa í deildinni.

Úrslit kvöldsins:

Fylkir-Stjarnan 21-33

FH-Víkingur 36-19






Fleiri fréttir

Sjá meira


×