Formúla 1

Schumacher með 2.2 miljóna öryggishjálm

Michael Schumacher hefur æft af kappi á kartbrautum til að undirbúa sig fyrir fyrsta Formúlu 1 mótið í 3 ár.
Michael Schumacher hefur æft af kappi á kartbrautum til að undirbúa sig fyrir fyrsta Formúlu 1 mótið í 3 ár. mynd: kappakstur.is

Micheal Schumacher keppir í stað Felipe Massa um aðra helgi og mætir með nýjan Schubert hjálm sem er metin á 2.2 miljónir króna.

Hjálmur Massa skemmdist í óhappinu þegar gormur skall í honum og festing fyrir öryggisglerið losnaði þegar læknar fjarlægðu hann úr bílnum. Framleiðandinn hefur nú breytt festingum fyrir glerið, til að auka öryggi hjálmsins sem Schumacher notar.

Hjálmarnir frá Schubert eru úr koltrefjum og þótti hjálmur Massa standast átökin vel, en ákveðið var að styrkja hjálmanna enn frekar. Tvöföld titanium festing hefur verið sett á glerið til að auka styrk festingarinnar sem var einföld og aðeins úr plasti.

Á hjálmi Schumachers verður nafn hans skrifað á kínversku auk nafns Mick, sonar hans, Corinne konu hans og Ginu Mariu dóttur hans. Þá verður talan sjö á hjálminum, sem tákn um sjö meistaratitila Schumachers.

Fyrsta mót Schumachers verður á Valencia brautinni á Spáni 23. ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×