Formúla 1

Briatore vill eilífðarbanni FIA aflétt

Flavio Briatore ásamt eiginkonu sinni. Elísabetu Gregoraci.
Flavio Briatore ásamt eiginkonu sinni. Elísabetu Gregoraci. Mynd: Getty Images

Flavio Britatore vitnaði í gær gegn FIA, alþjóðabílasambandinu fyrir frönskum dómstóli. Hann kærði FIA fyrir það sem hann telur ólögmætt keppnisbann til æviloka og vill meina að Max Mosley fyrrum forseti FIA hafi ráðið gangi mála.

Briatore var fundinn sekur hjá sérstöku ráði innan FIA að hafa lagt á ráðin að Nelson Piquet keyrði á vegg til að auka möguleika Fernando Alonso í keppninni í Singapúr 2008. Verknaðurinn sannaðist og FIA dæmdi Briatore í ævilangt bann. Briatore vill meina að ekki hafi verið farið að lögum í fyrirtöku málsins og að niðurstaðan hafi verið ákveðinn fyrirfram.

Málið var tekið fyrir í gær fyrir almennum dómsstóli og niðurstaða í málinu verður ekki birt fyrr en 5. janúar. Briatore fór fram á eina miljón evra í skaðabætur og vill frelsi til að mæta á móti og sinna störfum sínum sem umboðsmaður ökumanna.

Þá er mögulegt að breska knattspyrnusambandið banni honum að eiga í Queens Park Rangers knattspyrnuliðinu, en hann á hlut í liðinu ásamt Bernie Ecclestone. Knattspyrnusambandið vill ekki mann sem hefur orðið uppvís að svindli innan sinna vébanda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×