Kvennalið Grindavikur fær sér hávaxna skyttu 16. september 2009 16:00 Michele DeVault hitti úr 38,9 prósent þriggja stiga skotum sínum á fjórum árum. Mynd/Heimasíða East Tennessee State
Grindavík hefur líkt og fleiri lið í Iceland Express deild kvenna í vetur ráðið sér bandaríska leikmann fyrir átök vetrarins. Grindavík var eitt af fáum liðum deildarinnar sem var ekki með kana á síðasta tímabili en nú var ákveðið að styrkja liðið. Grindavík hefur samið við Michele DeVault sem er 23 ára og 180 sm framherji sem er fjölhæfur leikmaður sem getur bæði spilað inn í teig og eins fyrir utan. Hún var með 13,0 stig og 4,3 fráköst að meðaltali á lokaári sínu með East Tennessee State sjólanum. DeVault er mikil skytta en hún hitti úr 43 prósent af 197 þriggja stiga skotum sínum á lokaári sínu. DeVault setti alls niður 239 þrista á fjórum árum sínum í skólanum sem er skólamet. Michele DeVault skoraði samtals 1263 stig í 118 leikjum í skólanum (10,7) sem er það níunda mesta sem leikmaður kvennaliðs skólans hefur skorað á sínum ferli. „Ég er mjög ánægð með að fá tækifæri til að spila íþróttina sem ég elska að spila. Þetta er mikil samkeppni í deildinni og ég get ekki beðið eftir því að hitta nýju liðsfélagana mína," sagði DeVault í viðtali á heimasíðu East Tennessee State. Viðtalið við hana má sjá hér. Jóhann Þór Ólafsson er tekinn við Grindavíkurliðinu og verður yngsti þjálfari deildarinnar. Undir hans stjórn vann liðið Ljósavíkurmótið á dögunum og hann byrjar því vel.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Willum mættur fyrstur upp á spítala alla daga Sport Kristján hafði betur gegn Fjallinu og er sterkasti maður Íslands Sport Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Enski boltinn Höfuðhöggin á ferlinum valdi heilabilun Sport Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Aðför að forsetanum segir FIFA í harðorðri yfirlýsingu Fótbolti Hefur enn trú á sjálfum sér: „Finnst fólkið vera á bakvið okkur“ Íslenski boltinn Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Fleiri fréttir Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Sjá meira