Formúla 1

Schumacher klár í Formúlu 1 kappakstur

Michael Schumacher og Willy Weber á blaðamannafundi.
Michael Schumacher og Willy Weber á blaðamannafundi. Mynd: Getty Images

Umboðsmaður Michaels Schumachers segir kappann tilbúinn í Formúlu 1 og hann sé búinn að ná sér af meiðslum sem hindruðu hann í að taka sæti Felipe Massa í sumar, þegar hann meiddist í óhappi.

Mikil umræða hefur verið um það að Schumacher verði liðsmaður Mercedes liðsins, fyrrum Brawn liðsins á næsta ári. Hann myndi þá aka við hlið landa síns Nico Rosberg.

Til að það geti orðið þarf Ferrari að gefa Schumacher leyfi, þar sem hann ritaði nýlega undir 2 ára samstarfssamning við liðið, en ekki þó í formi ökumanns.

"Schumacher er 100% klár í kappakstur. Hálsmeiðslinn há honum ekkert lengur, það er hugur í honum og hann gæti keppt til sigurs", sagði Weber í viðtali í þýska tímaritinu Bunte.

Sagt er að Schumacher hafi farið á fund Luca Montezemolo, forseta Ferrari í síðustu viku til að ræða möguleika á þátttöku hans í Formúlu 1 2010.

Mercedes vantar toppökumann við hlið Rosbergs, en liðið missti af meistaranum Jenson Button, sem gekk til liðs við McLaren og hann verður þar ásamt Lewis Hamilton. Ferrari verður skipað Felipe Massa og Fernando Alonso.

Nafn Nick Heidfeld hefur borið á góma varðandi Mercedes, en unnendur Formúlu 1 myndu gjarnan vilja sjá Schumacher taka eitt ár en og þá er Mercedes besti kosturinn.

Sjá lista yfir ökumenn 2010






Fleiri fréttir

Sjá meira


×