Formúla 1

Formúla 1 á Silverstone til 2027

Breski kappaksturinn hefur farið fram á Silverstone síðan 1950.
Breski kappaksturinn hefur farið fram á Silverstone síðan 1950.

Mótshaldarar á Silverstone hafa tryggt að breski kappaksturinn fer fram á Silverstone á næsta ári. Rekstraraðilum Donington mistókst að fjármagna endurbætur á braut sinni, en þeir voru búnir að semja um Formúlu 1 mótshald til 17 ára til ársins 2027.

Það er mikill fengur fyrir breska kappakstursklúbbinn sem rekur brautina og rekur endahnútinn á margra ára deilur milli Bernie Ecclestone og klúbbinn um mósthaldið.

"Það vita allir að breski kappaksturinn er hlut af hefðinni og það hefði verið verulega slæmt að missa mótið frá Silverstone eins og allt benti til að yrði staðreynd", sagði Damon Hill sem er í forsvari fyrir brautina.

Unnið verður á endurbótum á brautinni á næstu árum og verður aðstaða áhorfenda og keppnisliða bætt til muna.

Sjá mótaskrá 2010












Fleiri fréttir

Sjá meira


×