Formúla 1

Vettell vill titilinn 2010

Sebastian Vettel vann í Kína um helgina og varð í öðru sæti í stigamóti ökumanna.
Sebastian Vettel vann í Kína um helgina og varð í öðru sæti í stigamóti ökumanna. mynd: kappakstur.is
Sebastian Vettel sýndi mikinn styrk á nýrri kappakstursbraut í Abu Dhabi í gær og vann keppnina eftir að hafa barist af hörku við Lewis Hamilton í upphafi mótsins. Með sigrinum tryggði Vettel sér annað sætið í stigamóti ökumanna.

McLaren bíll Hamiltons bilaði, en bremsukerfið klikkaði á ögurstundu og liðsmenn kölluðu hann inn í bílskýli eftir góðan sprett.

"Það væri gaman að halda áfram á sama hátt á næsta ári, með sigrum. Við höfum unnið 3 sigra í röð hjá Red Bull", sagði Vettel um mótið í gær.

"Það er langur vetur framundan og nýr bíll í smíðum. Það verður ekki umtalsverð breyting á bílunum, en bensítankurinn verður stærri, þar sem ekki má setja bensín á bílanna."

"Þetta tímabil sem liðið er var mjög skemmtilega og fleiri áttu möguleika á sigri en áður. Það voru bara tvö lið að keppa. Það var miklu meiri spenna í ár og mikið um framúrakstur. Okkur gekk ágætlega, en liðið og ég áttum okkar mistök, en þannig er kappakstur bara. Við verðum enn sterkari á næsta ári", sagði Vettel.

Hann verður meðal keppenda í meistaramóti ökumanna í Bejing á morgun, en mótið verður sýnt beint á Stöð 2 Sport kl, 12.00, en Michael Schumacher og Jenson Button verða einnig meðal keppenda. Keppt verður í kappakstri á samhliða braut sem er búið að leggja á Olympíuleikvanginum í Kína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×