Formúla 1

Ferrari staðfestir samning Alonso

Kimi Raikkönen víkur sæti hjá Ferrari fyrir Fernando Alonso.
Kimi Raikkönen víkur sæti hjá Ferrari fyrir Fernando Alonso. mynd: getty images

Stefano Domenicali , framkvæmdarstjóri Ferrari staðfesti í dag að Fernando Alonso hefur veirð ráðinn til þriggja ára til Ferrari.

Orðrómur þess efnis hefur verið i gangi í marga mánuði og mun Kimi Raikkönen víkja sæti fyrir Alonso, en Felipe Massa mætir til leiks á næsta ári á ný.

Raikkönen er með samning við Ferrari, en liðið kaupir hann út úr samingi til að komast í tæri við Alonso.

Massa lenti í slysi í Ungverjalandi en hefur hafið akstur á ný á kartbíl og fer í ökuhermi Ferrari innan tíðar. Talið er hugsanlegt að Massa mæti jafnvel í lokamótið í Abu Dhabi í nóvember, ef læknar gefa honum leyfi til þess.

sjá nánar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×