Handbolti

Einar: Er gríðarlega stoltur af stelpunum

Ómar Þorgeirsson skrifar
Einar Jónsson, fagnar í leikslok ásamt leikmönnum Fram.
Einar Jónsson, fagnar í leikslok ásamt leikmönnum Fram. Mynd/Daníel

„Þetta var geðveikur leikur. Ég veit ekkert hvað ég á að segja. Það var bara allt að ganga upp hjá okkur, sérstaklega vörn og markvarsla og ég er bara gríðarlega stoltur af stelpunum.

Við lögðum grunninn að sigrinum strax í byrjun leiks og raunar líka í vikunni fyrir leikinn þar sem undirbúningurinn var til fyrirmyndar og hugarfar stelpnanna frábært," sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, eftir dramatískan 20-19 sigur liðs síns gegn Val í úrslitaleik Eimskipsbikarsins á laugardag.

„Við erum búin að spila þrjá úrslitaleiki, í Reykjavíkurmótinu, deildarbikarnum og núna eimskipsbikarnum og vinna þá alla og það er gríðarlega jákvætt og ég er mjög stoltur og ánægður með það.

Við erum búin að ná okkar markmiðum til þessa og það er bara ólýsanlegt. Við ætlum okkur svo auðvitað meira en ég nenni ekki að hugsa um það núna," sagði Einar í sigurvímu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×