Handbolti

Gunnar Steinn með þrjú í sigri í grannaslag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gunnar Steinn Jónsson.
Gunnar Steinn Jónsson.

Drott vann í kvöld fimm marka sigur á Aranäs, 27-22, í grannaslag í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Gunnar Steinn skoraði þrjú mörk í leiknum en hann hefur verið einn öflugasti leikmaður liðsins í haust.

Drott komst alla leið í úrslitaleik sænsku úrvalsdeildarinnar í fyrra en hefur ekki gengið eins vel í ár og er sem stendur í níunda sæti deildarinnar með ellefu stig eftir þrettán leiki.

Aranäs er í sjötta sætinu með þrettán stig en Sävehof á toppnum með 23.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×