Handbolti

Aðalsteinn Eyjólfsson tekur við liði Eisenach

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aðalsteinn Eyjólfsson.
Aðalsteinn Eyjólfsson.
Aðalsteinn Eyjólfsson verður næsti þjálfari þýska 2. deildarliðsins ThSV Eisenach en þetta var tilkynnt á heimasíðu félagsins í dag. Aðalsteinn þjálfaði síðast 3. deildarliðið SVH Kassel en tekur nú við liði Eisenach sem var einu sinni í þýsku bundesligunni og þjálfað um tíma af Rúnari Sigtryggssyni.

Aðalsteinn segir í viðtali á heimasíðunni ætla að láta liðið spila blöndu af austur-evrópskum og skandínavískum handbolta. Liðið varð í 10. sæti af 18 liðum í suðurhluta þýsku 2. deildarinnar en aðalmarkmið næsta tímabils er að komast í 2. deildina þegar norður og suður-deildirnar verða sameinaðar.

„Lið eins og Eisenach á heima í þessari nýju deild. Það er mikilvægt fyrir mig að fá góðan tíma með liðinu og nýta vel alla hluti undirbúningstímabilsins. Auðvitað mun ég byggja á vinnu Maik Handschke sem var hér á undan mér," sagði Aðalsteinn meðal annars í viðtalinu á heimasíðunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×