Körfubolti

Hreggviður: Þetta var verðskuldaður sigur

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Hreggviður Magnússon.
Hreggviður Magnússon. Mynd/Daníel

„Þetta var öflugur og verskuldaður sigur hér í kvöld. Við vorum grimmari og börðumst eins og ljón. Dómararnir leyfðu okkur að spila og voru ekki að dæma mikið af villum, það fór frekar í hausinn á þeim en okkur í kvöld," sagði Hreggviður Magnússon, leikmaður ÍR, eftir 91-89 sigur á Grindvíkingum í kvöld í Iceland Express deild karla í körfubolta.

ÍR-ingar voru frábærir í kvöld. Það virtist allt fyrir utan enda ofan í körfunni og það var frábær stemning í liðinu í kvöld.

„Við hittum úr stóru skotunum og enduðum hérna með sigur í kvöld. Við fórum í þennan leik með ekkert annað en sigur að markmiði og það sýndi sig í leik okkar bæði varnarlega og sóknarlega".

Hreggviður átti góðan leik sem og allt ÍR-liðið en hann skoraði 19 stig í kvöld.

„Ég var ánægður með baráttuviljann og það að við ætluðum okkur ekkert annað en sigur hérna og það sást allan leikinn. Grindvíkingar spiluðu vel, þeir eru erfiðir andstæðingar og um leið og við slöppuðum af í smá stund þá voru þeir fljótir að refsa en þetta var verskuldaður sigur," sagði Hreggviður ánægður að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×