Fótbolti

Gunnar Heiðar spilaði í sigurleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gunnar Heiðar í leik með íslenska landsliðinu árið 2008.
Gunnar Heiðar í leik með íslenska landsliðinu árið 2008. Mynd/Daníel

Gunnar Heiðar Þorvaldsson spilaði allan leikinn með Fredrikstad sem vann 2-1 útisigur á Bodö/Glimt í norsku B-deildinni nú síðdegis.

Gunnar Heiðar spilaði í fremstu víglínu en staðan í hálfleik var 1-0, heimamönnum í vil. Celso Borges skoraði svo tvívegis með skömmu millibili í síðari hálfleik og tryggði Fredrikstad sigur.

Liðið er nú í öðru sæti deildarinnar með 39 stig, þremur stigum á eftir toppliði Sogndal sem á leik til góða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×