Handbolti

Fram fékk erfitt verkefni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fram mætir þýska liðinu HSG Blomberg-Lippe í 16-liða úrslitum Evrópukeppni bikarhafa en dregið var í morgun.

Fram hefur þegar slegið út tvo andstæðinga til þessa í keppninni en mætir nú sterku liði frá Þýskalandi.

Þá var einnig dregið í 16-liða úrslit EHF-keppninnar. Team Esbjerg, lið Örnu Sifjar Pálsdóttur, mætir Braila frá Rúmeníu og Rut Jónsdóttir og félagar í Team Tvis Holstebro drógust gegn RK Olimpija frá Slóveníu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×