Fótbolti

Mikilvægur sigur hjá Öster

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Davíð Þór Viðarsson, fyrir miðju.
Davíð Þór Viðarsson, fyrir miðju. Mynd/Vilhelm
Davíð Þór Viðarsson og félagar í sænska B-deildarliðinu Öster unnu í gær mikilvægan sigur í botnbaráttu deildarinnar.

Davíð Þór spilaði allan leikinn er Öster vann 2-0 sigur á botnliði Väsby en fyrir leikinn munaði aðeins fjórum stigum á liðunum.

Nú er Öster með 25 stig og sex stigum frá fallsæti. Liðið þarf hins vegar mjög líklega að taka þátt í umspili um að halda sæti sínu í deildinni fyrir næsta keppnistímabil.

Davíð Þór er fyriliði Öster en hann gekk í raðir félagsins frá FH síðastliðið haust.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×