Handbolti

Öruggur sigur hjá AG

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson í leik með AG.
Snorri Steinn Guðjónsson í leik með AG. Mynd/AG
AG Kaupmannahöfn vann í gær öruggan sigur á FIF í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær, 32-21.

Arnór Atlason skoraði þrjú mörk fyrir AG og Snorri Steinn Guðjónsson tvö. Mikkel Hansen var markahæstur í liðinu með fimm mörk.

Gísli Kristjánsson náði ekki að skora að þessu sinni fyrir FIF.

AG gerði óvænt jafntefli við Skjern um síðustu helgi en er nú aftur komið á sigurbraut. Liðið er í öðru sæti deildarinnar með sjö stig af átta mögulegum en Árósir eru á toppnum með fullt hús stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×