Körfubolti

Umfjöllun: Andlausir ÍR-ingar auðveld bráð fyrir KR

Henry Birgir Gunnarsson í DHL-höllinni skrifar
Morgan Lewis tróð nokkrum sinnum með tilþrifum í kvöld.
Morgan Lewis tróð nokkrum sinnum með tilþrifum í kvöld. Mynd/Valli

KR er komið í 1-0 gegn ÍR í átta liða úrslitum Iceland Express-deildar karla eftir frekar auðveldan sigur á andlausum ÍR-ingum, 98-81.

Leikurinn fór rólega af stað. Svolítil værukærð yfir mönnum og ekki að sjá að liðin væru að spila sinn fyrsta leik í úrslitakeppninni. ÍR-ingar fljótari að vakna en KR-ingar hófu þó leik eftir fímm mínútur og komust þá fljótt yfir.

Morgan Lewis var óvenju líflegur í liði KR og gerði eitthvað annað en reyna viðstöðulausar körfur. Nemanja Sovic heitastur í ÍR-liðinu og setti meðal annars níður fína þrista. KR yfir eftir fyrsta leikhluta, 24-22.

KR-ingar settu aðeins í gírinn í öðrum leikhluta, leiddir af Lewis, sem fór hamförum, byrjuðu þeir að breikka bilið á milli liðanna. Mestur var munurinn 14 stig en í leikhléi munaði tíu stigum á liðunum, 52-42.

Það vantaði miklu meiri grimmd í ÍR-liðið og KR þurfti ekkert að hafa mjög mikið fyrir því að skora. KR virtist aðeins vera í þriðja gír samt jókst munurinn á milli liðanna. Það var bara ekkert að gerast hjá ÍR. Staðan 77-58 fyrir KR þegar einn leikhluti var eftir.

Þegar munurinn var orðinn 20 stig, 81-61, datt Jarvis í gírinn og kveikti vel í ÍR-liðinu með tveim þriggja stiga körfum. ÍR náði muninum niður í 12 stig en þá tók KR völdin á ný og landaði að lokum sanngjörnum sigri, 98-81.

Morgan Lewis magnaður í liði KR og sýndi loks hvað hann getur. Pavel ótrúlega seigur og margir að leggja hönd á plóginn enda er KR flott lið.

Það saknaði Tommy Johnson ekki neitt í leiknum og spurning hvort KR-liðið sé ekki hreinlega betra án hans?

Hjá ÍR réð andleysið ríkjum. Sovic góður framan af og Jarvis byrjaði allt of seint. Aðrir leikmenn voru afar slakir.



KR-ÍR 98-81 (52-42)

Stig KR: Morgan Lewis 30, Fannar Ólafsson 16, Darri Hilmarsson 12, Jón Orri Kristjánsson 12, Brynjar Þór Björnsson 10 (6 stoðsendingar), Pavel Ermolinskij 10 (15 fráköst, 16 stoðsendingar), Finnur Atli Magnússon 8.

Stig ÍR: Robert Jarvis 29 (5 stoðsendingar), Nemanja Sovic 20, Kristinn Jónasson 10, Eiríkur Önundarson 8, Hreggviður Magnússon 6, Davíð Þór Fritzson 5, Elvar Guðmundsson 2, Steinar Arason 1.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×