Handbolti

Jónatan Þór búinn að semja við Kristiansund

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jónatan Þór Magnússon í leik með Akureyri.
Jónatan Þór Magnússon í leik með Akureyri. Mynd/Arnþór

Akureyringurinn Jónatan Þór Magnússon hefur skrifað undir þriggja ára samning við norska C-deildarliðið Kristiansund HK.

Jónatan mun því fara til liðsins í sumar, á sama tíma og Gunnar Magnússon, núverandi þjálfari HK, tekur við þjálfun liðsins.

Gunnar staðfesti þetta í samtali við Vísi í dag.

„Þetta hefur átt sér nokkuð langan aðdraganda en það er nú búið að ganga frá þessu," sagði Gunnar.

Hann sagðist ekki útiloka að fá fleiri íslenska leikmenn til liðs við sig fyrir næsta tímabil. „Við ætlum að bæta við okkur 1-2 leikmönnum og erum fyrst og fremst að skoða leikmenn frá Íslandi, Noregi og Danmörku."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×