Handbolti

Eðlilegt að einhverjar sitji svekktar heima

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Júlíus Jónasson, landsliðsþjálfari kvenna.
Júlíus Jónasson, landsliðsþjálfari kvenna. Fréttablaðið/Valli

Júlíus Jónasson, þjálfari A-landsliðs kvenna, hefur valið nítján leikmenn í íslenska lands­liðið sem fer á æfingamót í Noregi um þarnæstu helgi. Svo verður fækkað um þrjá í hópnum og fara sextán leikmenn Evrópumeistara­mótið í Danmörku og Noregi í næsta mánuði. Allir leikir Íslands verða í Danmörku.

„Mér líst vel á þennan hóp og eðlilega tel ég að ég hafi valið besta hópinn sem við eigum,“ sagði Júlíus við Fréttablaðið í gær. „Það er þó alltaf erfitt að standa að svona vali og það var ekki öðruvísi núna. Það er alveg ljóst og fullkomlega eðlilegt að það eru einhverjir leikmenn sem sitja eftir svekktir.“

Júlíus segir að margt þurfi að hafa í huga við val á landsliði. „Það er ýmislegt í þessu vali sem er ekki auðlesið af mörgum en þannig er það bara. Auðvitað væri betra að hafa fleiri leikmenn en maður er bundinn af reglunum.“

Júlíus valdi þrjá markverði í hópinn og segir óljóst hvort hann fari með alla þrjá til Danmerkur eða skilji einn eftir heima.

„Ég er ekki búinn að taka endan­lega ákvörðun hvað það varðar enn og báðir möguleikar koma til greina. Hér áður fyrr fóru lið undan­tekningalaust með þrjá markverði á stórmótin en það hefur breyst. Nú er hægt að skipta út leikmönnum eftir riðlakeppnina ef meiðsli koma upp og málin hafa þróast þannig að lið gera meira af því að fara með tvo markverði – án þess að ég sé að gefa nokkuð upp um hvað ég ætli að gera,“ segir Júlíus.

Sjálfsagt eru margir leikmenn óánægðir með að hafa ekki fengið tækifæri til að sanna sig fyrir þjálfaranum á æfingamótinu í Noregi. „Ég er búinn að skoða marga leikmenn og tel að ég sé nú með bestu leikmennina sem við eigum í hverri stöðu fyrir sig. Það eru einnig leikmenn í hópnum sem geta leikið fleira en eina stöðu, sem getur líka reynst dýrmætt.“

Hann segir að liðið ætli ekki að láta sér nægja að hafa komist inn á Evrópumeistaramótið en það er í fyrsta sinn sem A-landslið kvenna kemst á stórmót.

„Við vitum að okkar riðill er mjög erfiður en þannig er það með alla riðlana – öll sextán liðin sem keppa á mótinu eru mjög sterk. Við erum litla liðið í riðlinum en það getur líka verið kostur. Einn sigur gæti fleytt okkur upp úr riðlinum og draumurinn er að ná því að gera betur en við höfum gert hingað til. Það var frábært að komast á EM en við viljum ekki setja punktinn þar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×