Formúla 1

Webber og Schumacher fljótastir í Singapúr

Mark Webber á Red Bull í Singapúr leggur af stað í hring um brautina.
Mark Webber á Red Bull í Singapúr leggur af stað í hring um brautina. Mynd: Getty Images
Forystumaður stigamótsins, Ástralinn Mark Webber á Red Bull náði besta tíma á fyrstu æfingu Formúlu 1 keppnisliða í Singapúr í morgun. Hann varð 0.1 sekúndu fljótari en Michael Schumacher á Mercedes. Schumacher er að aka brautina í fyrsta skipti, en byrjað var að keppa á brautinni árið 2008. Keppt er í flóðljósum á brautinni á sunnudaginn. Schumacher sagði fyrir helgina að hann væri fljótur að ná tökum á nýjum brautum og það sannast á tíma hans. Landi Schumachers frá Þýskalandi, Adrian Sutil á Force India var þriðji fljótastur á æfingunni, en Sebastian Vettel á Red Bull fjórði. Brautin var blaut vegna rigningar, en þornaði undir lokin. Fimm ökumenn keppa af kappai um meistaratitilinn um helgina, Webber er efstur að stigum, Lewis Hamilton annar, þá Fernando Alonso, Jenson Button og Vettel. Sýnt er frá æfingum keppnisliða í dag í Singapúr á Stöð 2 Sport kl. 23.00.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×