Borgarfulltrúi VG vill að skemmtistaðir loki klukkan þrjú 22. maí 2010 12:22
Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna, hefur sagt sig úr stýrihóp um staðsetningu og opnunartíma áfengisveitingastaða vegna óánægju með hægagang og vinnubrögð hópsins. Hann vill fara að tillögum íbúa miðbæjarins og loka skemmtistöðum á ákveðnum svæðum klukkan þrjú. Þorleifur sagði sig úr stýrihóp Reykjavíkurborgar um staðsetningu og opnunartíma áfengisveitingastaða í gær. Þorleifur segist ósáttur við hægagang og aðgerðaleysi í starfi hópsins. Hann segist vona að nýr hópur verði skipaður að kosningum loknum. Auk þess gagnrýnir hann framkvæmd íbúafundar sem haldinn var um málið á fimmtudag og segir fundinn vera afskræmingu á lýðræðinu, en unnið var í hópum á fundinum. Þorleifur segir að ef íbúafundurinn hefði átt að endurspegla viðhorf íbúa miðborgarinnar hefði þurft að bjóða þversniði þeirra á fundinn. Samkvæmt heimildum fréttastofu íhugar stýrihópurinn að leggja til styttingu rýmri opnunartíma skemmtistaða um alls klukkustund, úr hálfsex að morgni í hálffimm. Styttingin muni vera í áföngum um hálftíma í hvort skipti. Þorleifur segist hins vegar hugnast hugmyndir íbúanna best og hyggst flytja tillögu í borgarráði þess efnis. Hann sér fyrir sér að skemmtistöðum á ákveðnum svæðum verði lokað klukkan þrjú að nóttu. Næturklúbbar og skemmtistaðir á öðrum svæðum geti hins vegar verið opnir lengur.
Kosningar 2010 Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira