Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Smári Jökull Jónsson skrifar 31. október 2026 12:19 Jóhannes Þór Skúlason er stjórnarmaður og gjaldkeri hagsmunafélags hinsegin fólks á Íslandi, Samtakanna 78. Stjórnarmaður samtakanna 78 segir það skringilega nálgun að líta svo á að hinseginn fáninn sé útilokandi fyrir þá sem ekki tilheyra hinsegin samfélaginu. Engin þörf sé að að færa slíka umræðu inn í íslenskt samfélag eða pólitík.
Í viðtali í Sætinu sem birtist á Vísi í gær ræddi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins meðal annars regnbogafánann og þá umræðu sem skapaðist i vor um sýnileika hans. Sigmundur sagði umræðuna hafa komið sér á óvart og sagði einhverja líta á fánana sem þvingandi. „Sem útilokandi fyrir krakka sem mæta í skólann og vilja bara vera þeir sjálfir og vera eins og þeir eru, útilokandi gagnvart hinu hefðbunda,“ sagði Sigmundur Davíð í Sætinu. Sjá einnig: Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Jóhannes Þór Skúlason, stjórnarmaður í Samtökunum 78 segir að rifja þurfi upp að regnbogafáninn standi fyrir að allir séu velkomnir. „Ég held að sú túlkun sem að hefur því miður komið fram, eitthvað svipað og þetta að hann sé með einhverjum hætti útilokandi fyrir þá sem að ekki tilheyra hinsegin samfélaginu, það er mjög skringileg nálgun á skilaboðin sem regnbogafáninn stendur fyrir og hefur alltaf staðið fyrir,“ segir Jóhannes. Hann segir umræðuna hér á landi sé angi af bylgju sem ríði nú yfir Evrópu og Ameríku og sé ekki ný. Mannréttindi eins skyggi ekki á mannréttindi annarra. „Það er bara mjög sorglegt að það sé verið að færa þetta sérstaklega inn í íslenskt samfélag og íslenska pólitík þegar engin þörf er á því. Gildi hér í samfélaginu að hafa lengi verið að þróast í þá átt að mannréttindi skipti máli og mannréttindi allra skipti máli. Og regnbogafáninn er í raun og veru bara tákn um það.“ Kannanir sýni að um 15-20 prósent nemenda í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla sjái sjálfa sig sem hinsegin eða hluta af hinsegin samfélaginu. Þörf sé á að sameinast um að tala um málefnið á grundvelli staðreyndar en ekki grípa falskenningar á lofti. „Ég held að þeir sem að tala með þeim hætti að það að sjá regnbogafána einhvers staðar í glugga eða fánastöng eða inni í skólastofu ýti þeim út í einhvers konar trend. Það er bara svo furðuleg hugmynd í mínum huga vegna þess að það er ekki tíska að vera hinsegin. Fólk annaðhvort er það eða ekki,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, stjórnarmaður Samtakanna 78.
Hinsegin Miðflokkurinn Sætið Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira