Handbolti

N1-deild kvenna: Sigrar hjá Val og Stjörnunni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Anna Úrsula átti fínan leik í kvöld.
Anna Úrsula átti fínan leik í kvöld.

Tveir leikir fóru fram í N1-deild kvenna í kvöld. Valur vann öruggan tíu marka sigur á Fylki og Stjarnan vann einnig frekar auðveldan sigur á Gróttu.

Hanna Guðrún Stefánsdóttir fór mikinn í liði Stjörnunnar í kvöld og skoraði heil 14 mörk takk fyrir.

Liðsheild Vals var síðan sterk sem fyrr gegn Fylki en Sunna María var allt í öllu hjá Fylki eins og svo oft áður.

Úrslit kvöldsins:

Grótta-Stjarnan  27-33 (12-17)

Mörk Gróttu: Hildur Marín Andrésdóttir 7, Tinna Laxdal Gautadóttir 7, Sigrún Birna Arnardóttir 3, Fríða Jónsdóttir 2, Ásrún Lilja Birgisdóttir 2, Björg Fenger 2, Steinunn Þorsteinsdóttir 2, Ásgerður Dúa Jóhannesdóttir 2.

Mörk Stjörnunnar: Hanna Guðrún Stefánsdóttir 14, Elísabet Gunnarsdóttir 4, Jóna Margrét Ragnarsdóttir 3, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 3, Aðalheiður Hreinsdóttir 3, Esther Viktoría Ragnarsdóttir 2, Katla Þorgeirsdóttir 2, Hildur Harðardóttir 1, Þórhildur Gunnarsdóttir 1.

Valur-Fylkir  35-25 (16-11)

Mörk Vals: Íris Ásta Pétursdóttir 8, Anna Úrsula Guðmundsdóttir 7, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 6, Ágústa Edda Björnsdóttir 5, Kristín Guðmundsdóttir 4, Arndís María Erlingsdóttir 2, Hildigunnur Einarsdóttir 2, Rebekka Skúladóttir 1.

Mörk Fylkis: Sunna María Einarsdóttir 9, Arna Valgerður Erlingsdóttir 5, Nataly Valencia 3, Guðríður Jónsdóttir 2, Elín Helga Jónsdóttir 2, Sigríður Hauksdóttir 1, Kristrún Steinþórsdóttir 1, Áslaug Gunnarsdóttir 1, Tinna Soffía Traustadóttir 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×