Formúla 1

Button: Brautin í Suður Kóreu áhugaverð

Jenson Button á möguleika á meistaratitlinum og hefur titil að verja.
Jenson Button á möguleika á meistaratitlinum og hefur titil að verja. Mynd: Clive Mason/Getty Images

Jenson Button á enn möguleika í meistaraslagnum eins og fjórir aðrir ökumenn, en hann er núverandi meistari. Hann keppir eins og aðrir á nýrri braut í Suður Kóreu um næstu helgi.

"Það er alltaf spennandi að heimsækja nýja braut í fyrsta skipti. Brautin í Kóreu virðist áhugaverð, hefur margslunginn karakter og það virðast vera tveir staðir til framúraksturs. Sérstaklega í lok þriggja beinna kafla brautarinnar og mögulega á krókóttum lokakafla brautarinnar. Hún virðist vera háhraðabraut og veggirnir eru nálægt, þannig að þetta verður áhugavert viðfangsefni", sagði Button á heimasíðu Mclaren liðsins, mclaren.com.

Button telur að einhverjar óvæntar uppákomur geti orðið á brautinni í fyrsta mótinu, en hefur trú á því að starfsmenn keppnisliða og ökumenn muni hjálpast að um að láta allt ganga upp.

"Við höfum lagað til nýjungar sem við prófuðum á bílunum á Suzuka brautinni og lítur út fyrir að við notum þá á föstudagsæfingum í Kóreu. Ég er bjartsýnn á að prófanir okkar muni koma vel út og við getum keppt með nýja hluti", sagði Button.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×