Körfubolti

Páll Axel: Það er greinilega margt að

Henry Birgir Gunnarsson í Fjárhúsinu skrifar
Mynd/Valli

„Tímabilið í heild sinni er vonbrigði á vonbrigði ofan. Við fengum ekkert af því út úr þessu tímabili sem við ætluðum okkur," sagði Grindvíkingurinn Páll Axel Vilbergsson hundsvekktur í spjalli við blaðamann Vísis í áhaldageymslunni í Fjárhúsinu.

Grindavík er úr leik í Iceland Express-deild karla og þetta lið sem var spáð afar góðu gengi stóð alls ekki undir væntingum.

„Það er alltaf lagt upp með væntingar í Grindavík. Við viljum alltaf vinna. Menn vonuðust eftir meira í ár enda með gríðarlega sterkan mannskap. Það var ekki of mikil pressa á liðinu en við setjum mikla pressu á okkur sjálfa. Við hlustum ekki á utanaðkomandi," sagði Páll Axel en hvað var að hjá Grindavík í vetur?

„Ég veit það ekki. Það þarf að kryfja það betur og ég vil ekki henda einhverju frá mér í einhverri bræði eftir þennan leik. Það er greinilega margt að og margt sem má betur fara."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×