Handbolti

Þorgerður Anna aftur í Stjörnuna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þorgerður Anna í leik með Stjörnunni.
Þorgerður Anna í leik með Stjörnunni. Mynd/Anton

Þorgerður Anna Atladóttir hefur ákveðið að ganga aftur til liðs við Stjörnuna og hefur hún skrifað undir eins árs samning við félagið.

Þorgerður er átján ára og lék áður með Stjörnunni. Hún hélt til Danmerkur í sumar þar sem hún var á mála hjá FIF. Félagið lenti hins vegar í fjárhagserfiðleikum og ákvað hún að snúa aftur til Íslands.

Valið hjá henni stóð á milli Stjörnunnar og Vals og segir hún að ákvörðunin hafi verið erfið.

„Ég kom heim á sunnudaginn og hitti svo bæði lið á mánudaginn. En ég þurfti að taka ákvörðun fljótt enda er ég þegar búin að missa af einum leik á tímabilinu," sagði Þorgerður.

„Þetta var mjög erfið ákvörðun en ætli hjartað hafi ekki ráðið þarna för. Ég þekki líka allt hjá Stjörnunni og allar stelpurnar sem spila þar. Ég veit út í hvað ég er að fara og á von á því að veturinn verði spennandi."

Valur er núverandi Íslandsmeistari og Þorgerður segir að vissulega hafi það verið freistandi að fara á Hlíðarenda. „Valur er sjálfsagt með sterkasta liðið í deildinni og mér leist mjög vel á allt þar. Það kitlaði að fara til Vals og þetta var erfið ákvörðun. Ég hugsaði þetta fram og til baka á meðan ég var úti og svaf lítið á næturnar."

„Það eru kostir og gallar við bæði lið og það er sama hvaða ákvörðun ég hefði tekið - báðar hefðu verið réttar. En ég er sátt við það sem ég valdi."

Hún segir þó að stefnan sé að komast aftur út í atvinnumennskuna. „Ég lít á þennan vetur sem tækifæri til að koma mér enn betur í gang. Ég mun spila hér þar til eitthvað annað kemur í ljós, hvenær sem það verður."

Hún stefnir einnig að því að vinna sér sæti í landsliðinu fyrir úrslitakeppni EM sem fer fram í Danmörku í desember.

„Að sjálsögðu stefni ég að því. Ég verð að einbeita mér að því að æfa eins vel og hægt er. Ég hef verið inn og út úr landsliðinu - aðallega út - enda á Ísland fullt af góðum skyttum. Það eina sem ég get gert er að gera mitt besta og vona það besta."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×