Tvenna Huntelaar kom AC Milan á sigurbraut á nýjan leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2010 23:21 Klaas Jan Huntelaar fagnar öðru marki sínu með Ronaldinho. Mynd/AFP
Hollendingurinn Klaas Jan Huntelaar skoraði tvö mörk í 3-2 sigri AC Milan á Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld en þetta var fyrsti sigur AC Milan í fimm leikjum og kom á góðum tíma fyrir fyrri leikinn á móti Manchester United í Meistaradeildinni í næstu viku. Klaas Jan Huntelaar og Alexandre Pato komu AC Milan í 2-0 í fyrri hálfleik en Antonio Floro Flores minnkaði muninn fyrir hálfleik. Huntelaar kom Milan-liðinu síðan í 3-1 áður en Antonio Di Natale minnkaði muninn fjórum mínútum fyrir leikslok með sínu sautjánda marki á tímabilinu. „Þetta var mikilvægur sigur fyrir okkur því við urðum að vinna til þess að halda í við Roma. Ég verð að vinna mína vinnu og skora mörk. Ég er mjög ánægður með að hafa skorað og hvað þá tvö mörk," sagði Klaas Jan Huntelaar eftir leikinn en AC Milan er nú átta stigum á eftir toppliði Inter en einu stigi á undan Roma sem er í þriðja sætinu. Brasilíumaðurinn Ronaldinho lagði upp öll þrjú mörk AC Milan liðsins, fyrra mark Huntelaar var skallamark á 7. mínútu leiksins og það seinna skoraði Huntelaar af stuttu færi eftir aukaspyrnu Ronaldinho.
Ítalski boltinn Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Sjá meira