Fótbolti

Dregið á föstu­dag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar

Sindri Sverrisson skrifar
Strákarnir okkar gátu fagnað vel í Þórshöfn í gær.
Strákarnir okkar gátu fagnað vel í Þórshöfn í gær. Sýn Sport

Ungu strákarnir okkar í U21-landsliðinu í fótbolta skoruðu tvö frábær mörk í Færeyjum í gær og tryggðu sig inn í umspilið um sæti í lokakeppni EM. Nú er ljóst hvaða lið gæti beðið Íslands í umspilinu.

Ísland vann 2-0 og sigurinn dugði Íslandi til að ná 2. sæti síns riðils á kostnað Sviss sem steinlá gegn Frakklandi á sama tíma, 7-1.

Mörkin úr sigri Íslands og fögnuð íslensku strákanna í Þórshöfn má sjá hér að neðan. Benoný Breki Andrésson skoraði fyrra markið með skalla eftir stórkostlegan undirbúning Amin Cosic og seinna markið skoraði svo Daníel Tristan Guðjohnsen eftir aðra sókn fram vinstra megin og sendingu Daníels Freys Kristjánssonar.

Klippa: Mörk Íslands og fögnuðurinn í Færeyjum

Daníel Tristan skoraði því í öllum þremur leikjum U21-liðsins í þessum leikjaglugga, samtals fjögur mörk, gegn Færeyju, Sviss og Frakklandi. Hann endaði með sjö mörk í undankeppninni.

Tveggja leikja einvígi í nóvember

Dregið verður í EM-umspilið á föstudagsmorgun en umspilið sjálft fer svo fram um miðjan næsta mánuð. Evrópumeistaramótið er svo í Albaníu og Serbíu næsta sumar.

Liðunum átta í umspilinu verður ekki raðað í styrkleikaflokka svo Ísland gæti mætt hverju sem er af hinum liðunum sjö. Þau eru: Tékkland, Danmörk, Finnland, Grikkland, Holland, Írland og Tyrkland.

Í umspilinu verður liðunum skipt í fjögur tveggja leikja einvígi og sigurvegari hvers einvígis kemst á EM. 

Tvisvar áður komist á mótið

Liðin tólf sem eru komin með sæti á EM eru gestgjafarnir Albanía og Serbía, Belgía, Króatía, England, Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Noregur, Pólland, Portúgal og Spánn.

Íslenska U21-landsliðið hefur tvisvar sinnum komist í lokakeppni EM. Fyrst var það gullkynslóðin sem komst á EM 2011 og átti síðar eftir að koma A-landsliðinu á EM 2016 og HM 2018, og svo aftur árið 2021.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×