Fótbolti

Býður sig fram á móti Infantino

Andri Broddason skrifar
Ramos Vega ætlar að bjóða sig fram gegn Gianni Infantino í forsetakosningum FIFA.
Ramos Vega ætlar að bjóða sig fram gegn Gianni Infantino í forsetakosningum FIFA. Daniel Smith/Getty Images

Mikil dramatík hefur verið í fótboltaheiminum um hver eigi að taka við af Gianni Infantino sem forseti FIFA. Infantino hefur orðið umdeildur eftir gjörðir hans í kringum heimsmeistaramótið í fótbolta og nú hefur loks fyrsta mótframboð gegn honum verið tilkynnt.

Það er Ramon Vega sem hefur tilkynnt að hann muni bjóða sig fram til forseta á móti Infantino en kosningar verða í mars á næsta ári. Vega er svissneskur og spilaði á sínum leikmannaferli með Tottenham í ensku úrvalsdeildinni.

Hann hefur starfað í fjármálum síðan atvinnumannaferli hans í fótbolta lauk en nú langar hann að vinna við fótbolta og mun því bjóða sig fram til forseta FIFA. Hann tilkynnti framboð sitt í ellefu blaðsíðna bréfi þar sem honum fannst hann vera knúinn til þess að bjarga fótboltanum.

„Trú og traust á fótboltaheiminum hafa verið sködduð mikið. Við þurfum að endurbyggja bæði, endurbyggja trúverðugleika FIFA og sameina aftur fótboltafjölskyldu heimsins,“ stóð meðal annars í bréfi Vega.

Hann íhugaði að bjóða sig fram á móti Infantino árið 2015 þegar Sepp Blatter sagði af sér. Hann hætti þó við en reyndi aftur árið 2022 en náði ekki að sækja sér nógu mikinn stuðning.

Enn er tími fyrir fleiri til þess að bjóða sig fram til forseta en síðasti dagur til þess að tilkynna framboð er 18. nóvember. Kosningarnar verða svo haldnar í mars og eru margir aðdáendur fótbolta sem væru til í að sjá Infantino ekki vera lengur forseti sambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×