Skoðun

Leikjafræði lánanna

Jón Þór Ólafsson skrifar
Meðan HM er í hámarki er stórleikur á Íslandi. Það færðist fjör í leikinn á dögunum þegar Hæstiréttur gaf gengistryggingu lána rauða spjaldið. En hvaða leikmenn eru í keppnisliðunum og hver er staðan í leiknum?

Staðan er þannig að meðan réttaróvissa ríkir um hverjir vextir lánanna skulu vera segja 36. grein laga nr. 7/1936 og neytendaverndartilskipun ESB að neytandinn skuli njóta vafans. Í þessu tilfelli eru neytendurnir í liði lántakenda.Lið fjármálafyrirtækja eiga að hámarka arð fjárfesta sinna. Þau klúðruðu sókn með ólöglegum lánum og reyna nú að bjarga því sem bjargað verður fyrir sig og sína liðseigendur. Fyrrum liðsmaður þeirra, Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra, keppist nú við að sannfæra almenning um að það sé almannahagur að verja fjárfesta í leiknum.Lið Seðlabanka og Fjármálaeftirlits eiga að standa vörð um stöðugleika fjármálakerfisins. Þeir hafa líka stillt sér í vörn fjárfesta og segja það almannahagsmuni að allir geri hið sama. Vörnin er samt veik því allur efnahagsleikvöllurinn hvílir umfram allt á réttaröryggi. Þegar það tapast þá tapast stöðugleiki fjármálakerfisins einnig.

Ragna Árnadóttir ber sem dómsmálaráðherra ábyrgð á að lögum sé framfylgt og að standa vörð um réttaröryggi landsmanna. Við umbjóðendur hennar höfum veitt henni vald til þessa. Til að verja réttaröryggi landsins þarf leikáætlun Rögnu að minnsta kosti að innihalda þrjár eftirfarandi leikfléttur.

1. Þegar Seðlabankinn og FME mæla með því að fjármálafyrirtæki rukki vexti sem réttaróvissa er um og brjóti því lög um að neytandinn skuli njóta vafans, þá á ráðherra að gefa út yfirlýsingu um að slíkt verði ekki liðið.

2. Ef lánafyrirtækin senda út innheimtuseðla með vöxtum sem réttaróvissa er um er það ekki neytandans að fara í mál. Það er ráðherra að framfylgja lögum um að neytandinn skuli njóta vafans og benda fjármálafyrirtækjum á að þau geti sótt rétt sinn fyrir dómstólum. En ef þau haldi vaxtakröfunni til streitu verði þau ákærð.

3. Ef sýslumenn, og aðrir starfsmenn dómsmálaráðherra, ætla að ganga erinda fjármálafyrirtækja við að ganga að eigum lántakenda án þess að sækja málið fyrir dómstólum, skal ráðherra samstundis stöðva þá og ávíta.

Boltinn er hjá Rögnu. Sjáum hvort hún og hennar liðsmenn standa vörð um réttaröryggi landsmanna eða hvort hún stendur á hliðarlínunni meðan hennar sýslumenn og lögregla hjálpa fjármálafyrirtækjunum að rúlla upp réttaröryggi landsins.

 




Skoðun

Sjá meira


×