Seinni hring dagsins á Fitness Sportmótinu frestað Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. júní 2010 13:27
Það hefur orðið breyting á Fitness Sportmótinu sem er annað mótið á Eimskipsmótaröðinni í golfi en spilað er á Leirdalsvelli hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar. Mótstjórn hefur ákveðið að fresta seinni hring dagsins vegna veðurs. Keppendur hafa spilað 18 holur á Fitness Sportmótinu en gert var ráð fyrir að spila 36 holur í dag og 18 á morgun. Þessu hefur verið snúið við og verða því 18 holur spilaðar í dag og 36 á morgun. Það er leiðinlegt veður á höfuðborgarsvæðinu, mikið rok og rigning og því eru menn að vonast til að það verði betri aðstæður til golfleiks á morgun. Ræst verður út á morgun frá 6:30 og verður raðað út eftir skori sömu ráshópar munu svo spila lokahringinn eftir hádegi á morgun.
Golf Mest lesið Botna ekkert í Aþenu: „Margt við þetta lið Hörður minn sem ég átta mig ekki á“ Körfubolti Messi skrópaði í Hvíta húsið Fótbolti Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Fótbolti Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli Handbolti „Vonandi flyt ég heim til Grindavíkur áður en ég dey“ Körfubolti Mo Salah skýtur á Carragher Enski boltinn Lech Poznan að kaupa Gísla: Mættur í læknisskoðun Fótbolti Nýja elsta kona heims elskar fótbolta Fótbolti Segir að Forest fari í titilbaráttu með sigri á Liverpool Enski boltinn Halla forseti bauð þeim báðum á Bessastaði Sport Fleiri fréttir Slógu golfbolta hvors annars og misstu af milljónum Gunnlaugur í úrvalslið Evrópu og bestur ásamt Huldu Meiddist við að elda jólasteikina og missir af fyrstu mótum ársins Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Tiger og sonur í forystu á feðgamótinu Verða að hafa fæðst sem konur til að fá að keppa á LPGA Vill verðlaunafé á Ryder Cup til að styrkja góð málefni Meiddur Tiger segist enn hafa eldmóðinn Sjá meira