Golf

Evrópa hafði betur gegn Banda­ríkjunum

Andri Broddason skrifar
Lið Evrópu hafði betur gegn liði Bandaríkjanna í Sólheim-bikarnum í golfi.
Lið Evrópu hafði betur gegn liði Bandaríkjanna í Sólheim-bikarnum í golfi. Kate McShane/Getty Images

Lið Evrópu bar sigur úr bítum í Solheim-bikarnum í golfi. Leikurinn endaði með 15-13 sigri gegn liði Bandaríkjanna þar sem stjörnur Evrópu stigu upp í lokin.

Staðan var jöfn fyrir lokadaginn í dag þar sem staðan var 8-8. Ljóst var að liðin þurftu aðeins sex og hálft stig til þess að sækja sigur en lið Evrópu byrjaði daginn sterkt.

Breski kylfingurinn Charley Hull vann Megan Khang í fyrstu viðureign dagsins og var sá sigur lýsandi fyrir evrópska liðið. Seinna um daginn var staðan orðin jöfn eftir að Nelly Korda vann sína viðureign fyrir Bandaríkin og ljóst að lokaviðureignirnar myndu vera spennandi.

Lottie Woad endaði á að vinna sína viðureign fyrir evrópska liðið og við það byrjuðu fagnaðarlæti að heyrast um allan völl þar sem ljóst var að sigurinn væri í höfn.

Anna Nordqvist var gagnrýnd snemma í mótinu fyrir uppröðun sína í ákveðnum viðureignum en gagnrýnisraddirnar þögnuðu þegar sigurinn var í höfn. Nordqvist sagði eftir mótið að það hefði verið sterkt að senda Charley Hull fyrsta út og sækja sigur til að veita restinni af liðinu innblástur.

Nýliðarnir í evrópska liðinu skiluðu sínu þegar það skipti mestu máli og unnu Julia Lopez Ramirez og Nastasia Nadaud báðar sínar viðureignir. Mimi Rhoades tapaði sinni viðureign en hún mætti Nelly Korda sem er efst á heimslistanum.

Evrópa hefur nú unnið Solheim-bikarinn þrisvar síðan árið 2019. Mótið er aðeins haldið annað hvert ár og því er Evrópa búið að vera sterkara liðið síðustu keppnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×