Golf

Átta Ís­lendingar mætast í Þýska­landi

Sindri Sverrisson skrifar
Íslandsmeistarinn Dagbjartur Sigurbrandsson ætlar sér að gera gott golfár enn betra.
Íslandsmeistarinn Dagbjartur Sigurbrandsson ætlar sér að gera gott golfár enn betra. Vísir/Bjarni

Baráttan blóðuga um sæti á Evrópumótaröðinni í golfi, eða DP World Tour, er hafin og svo skemmtilega vill til að átta Íslendingar munu mætast á sama móti í Þýskalandi næstu daga.

Það er til marks um uppganginn í íslensku golfi að átta kylfingar skuli spila á mótinu sem fram fer 8.-11. september, á Seddiner See-vellinum í Michendorf í Þýskalandi.

Mótið er eitt af tíu mótum á fyrsta stigi úrtökumótanna en kylfingar þurfa að komast í gegnum þrjú stig til þess að fá þátttökurétt á DP World Tour og óhætt að segja að þræða þurfi nálaraugað til að komast alla leið.

Íslensku kylfingarnir í Þýskalandi:

  • Hlynur Bergsson – Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
  • Ragnar Már Garðarsson – Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
  • Aron Júlíusson – Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
  • Sigurður Arnar Garðarsson – Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
  • Dagbjartur Sigurbrandsson – Golfklúbbur Reykjavíkur
  • Jóhann Frank Halldórsson – Golfklúbbur Reykjavíkur
  • Tómas Eiríksson Hjaltested – Golfklúbbur Reykjavíkur
  • Logi Sigurðsson – Golfklúbbur Suðurnesja

Alls spila 82 kylfingar á mótinu í Þýskalandi og má ætla að rúmlega fimmtungur þeirra fari áfram á annað stig, þar sem svo samtals um 320 kylfingar spila á fjórum mótum um mánaðamótin október-nóvember á Spáni. Á lokamótinu mæta svo 156 kylfingar til leiks og leika sex hringi. Aðeins þeir 15 efstu, og jafnir 15. sæti, á lokaúrtökumótinu komast inn á DP World Tour auk þess að fá fullan keppnisrétt á HotelPlanner Tour, næststerkustu mótaröð Evrópu.

Íslensku kylfingarnir hefja leik í fyramálið og fer Ragnar fyrstur af stað klukkan 8:40.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×